|
|
09.02.2008 01:53:42 / eggrún
»
06.02.2008 23:01:07 / eggrún
jæja eftir rumlega mánaða leit af vinnu var hringt í mig í dag frá vínbúð Heiðrúnar og er ég að fara og skoða vinnuna á morgun hlakka geðveikt til að fara og gera eitthvað allt annað en að baka osti, eða vera á einhverjum vélum í mjólkurstöðinni, fínt að fá smá tilbreytingu ekki fyrir það, þá líkar mér alltaf mjög vel við mjólkurstöðina fín vinna og gott að vinna með fólkinu þar. Þannig næst á dagsskrá er að finna sér ökukennara og fara í ökuskóla til að drífa nú í þessu blessaða bílprófi ( Mamma svo þegar ég kem í Búðardal þá getum við farið saman á rúntin eins mikið og við getum og þegar okkur langar. Eða þú skilur hvað ég á ) Dagbjört og Hrannar buðu okkur í saltkjöt og baunir, og var rosa gott að fá svona alvöru mat. En ættli maður láti þetta ekki gott heita nuna í bili, hef svo sem ekkert mikið annað að segja.
»
18.01.2008 21:46:02 / eggrún
Halló allir !!!! Ég sit núna við borðið mitt og horfi niður í Laugardalinn sem er frekar fallegt því það er snjór yfir öllu. Reyndar ér ég að bíða eftir mömmu og pabba þau eru að koma. Ég fór með Silju í Kringluna í dag og keypti mér buxur og peysu og fékk mér svo geðveikan kjól sem ég ætla nú að fara í á Þorrablótið sem verður í Búðardal þann 26. janúar. Á morgun er planið að fara út að borða og eitthvað niður í bæ á eftir með Svízuhópnum þeir sem vita ekki hvað ég er að tala um þá er það bara við stelppurnar úr bekknum úr Grunnskólanum, ætli ég kíkji ekki svo í afmæli svo maður sé ekki ókurteis að láta ekki sjá sig. Svo er ég bara að vona að fá jákvatt svar frá búð í Kringlunni sem heitir Evans um að fá vinnu.
»
16.01.2008 16:50:58 / eggrún
Jæja ég er nú loksins búin að fá tölvuna mina aftur. Þeir sem vita ekki þá er talvan mín búin að vera í viðgerð síðan í nóvember eða eitthvað þannig. En allaveganna, Boga systir kom í rvk á fimmtudagskvöld og komu svo mamma og pabbi á laugardag og voru hjá okkur um helgina. Ég og pabbi skelltum okkur á leik á sunnudeginum og VÁ þetta er svo allt annað en að horfa á handboltaleik í sjónvarpinu, reyndar var ég að fíla mig geðveikt því ég sat hja einhverjum stórum körlum sem lifa fyrir handbolta og þeir voru alveg svakalegir allaveganna að sitja og hlusta á þá var bara gaman og svo bölvuðu þeir þegar þeir voru ekki sáttir við dómarana eða eitthvað annað. Er bara að leita mér að vinnu og er búin að sækja um á ýmsum stöðum og er bara að bíða eftir svari frá einhverjum. Held að ég láti þetta bara duga
»
29.10.2007 23:19:03 / eggrún
Jæja tími á smá blogg ekki satt !!! úff allt í einu var svo mikið að gera hja mér að eg vissi ekki hvað eg átti að byrja á. 8 ''Eg er að læra Brennu-nálssögu og á að skrifa tíma ritgerð og eg ætlaði að klára hana heima svo ég væri í góðum málum með hana og læra hana síðan utan að, og var búin að koma mer vel fyrir og komin með öll verkefnin og glósur og allt en svo bara var stífla það sem eftir var og ég gerði ekkert annað en að lesa fram og til baka. (alveg orðin ringluð enda er njálssaga ekki það léttasta) Var orðin frekar pirruð þegar klukkan var orðin 9 um kvöldið og ekkert búið að gerast, en þá sá eg að systir min hún Dagbjört var a msni og byrjaði að tala við hana og eftir að hafa talað við hana náði ég að byrja á ritgerðini held að ég hafi bara hugsað of mikið um ritgerðina. En eins og þið flest kannski kannist við þá er oftast ERFITT AÐ BYRJA og þegar maður er komin af stað þá gengur þetta. En svo er lika bara oft gott að tala við einhvern í fjölskyldunni. Því það er oft þau sem ýta á mann og koma manni af stað ef maður er með t.d í vandræðum með að byrja skrifa ritgerð. Svo Dagbjört takk fyrir að koma mér af stað Er að spá í að hafa Þetta sem loka orð hja mér núna í bili
»
18.10.2007 17:43:43 / eggrún
»
03.09.2007 15:33:49 / eggrún
Ég ákvað á föstudag að fara bara með pabba heim um kvöldið, vorum buin að vera hjalpa Dagbjörtu að klára að ganga frá íbúðinni. Silja og Dagbjört komu svo á laugardaginum. Klukkan 6 hringjir Svala í mig og segir að hún vilji endilega að ég komi með mömmu í starfsmannapartyið því eg hefði verið að vinna einn dag í samkaup, eg skellti mér auðvitað bara með og það var bara rosa gaman, og maturinn svaka góður, við lásum brandara og svo kom miðill eða eitthvað þannig, og hun tók nokkra saman fyrir framan alla hópin og sagði við okkur það sem hún greinilega fann, eða allaveganna sagði hún nu margt við mig sem var bara eins og hún hefði þekkt mig síðan ég var litil, svo klukkan 12 voru unglingarnir sendir heim. Nokkrar af okkur byrjuðum í sing star sem var bara skemmtilegt því sumar þurftu að hella sig ansi fullar til að meika að syngja en ja eins og ég sagði var þetta skemmtilega fyndið og skemmtu allir sér vel, svo kom loksins maðurinn sem spilaði á gítar og við sungum. Ég held bara að ég og mamma höfðum komið klukkan 4 um nóttina, svo leið sunnudagur og ég og Dagbjört ákvaðum að skella okkur bara með pabba á mánudagsmorgni svo núna sit ég bara hérna inni í herbergi hja Silju og hlusta á pabba vera laga eitthvað hja Gunnari og Erlu. En jæjá eg þarf held ég bara að fara læra svo eg verði einhverntíman búin að því þannig ég læt þetta bara nægja núna
»
12.08.2007 12:52:20 / eggrún
Jæja nú er sumarið alveg að vera búið
og nú á eg bara eftir að vinna miðvikudag og fimmtudag

þá liggur leið mín í Reykjavík. Byrja í skólanum
22 ágúst og get ekki beðið eftir að byrja því ég held að það verði
bara gaman, (ENGINN STÆRÐFRÆÐI ) fer í íslensku, ensku, þýsku,
félagsfræði, íþróttir og nytjalist( þeir sem ekki vita hvað það
er), þá er það áfangi fyrir nemendur sem hafa áhuga á tísku,
fatnaði og handverki. Nemendum er veitt innsýn í margvíslega
nytjalist og lögð áhersla á gott handbragð og tilfinningu fyrir vel
unnu verki. Í áfanganum læra nemendur meðferð véla og áhalda sem
tengjast textíl og saumaskap. Þeir þjálfast í vinnu með mismunandi
textílefni og læra að velja saman snið og efni, taka snið upp úr
blöðum og breyta eftir þörfum. Nemendur æfast í að beita hug og
hönd á sjálfstæðan hátt við skapandi verkefni, sem nýtast í daglegu
lífi.
JA BOGA MÍN TIL HAMINGJU MEÐ
DAGINN Í DAG
Hef ekkert farið neitt í sumar bara nokkrum
sinnum i rvk og heim aftur, fór í Hólminn til ömmu og afa, og fór a
Eriksstaðahátíð sem var líka geðveikt gaman.
Ætli ég lati þetta ekki bara nægja í bili mun
vera duglegri að blogga í framtíðinni
»
12.06.2007 21:42:46 / eggrún
já mæti í vinnu um 6 í morgun og frekar pirruð því þegar ég leit
inn í kæli var hann allt í rugli segi það bara HELVIFTI,
DJÖFUL, ANDSKOTANS ....... EN JA eg ákvað bara að byrja og telja þá
vagna sem áttu að fara með bílnum sem gekk frekar vel svo bar, fór
um klukkan korter í 7 að hella á kaffi fyrir karlanna sem eru
alltaf komnir um 7 og byrjaði svo að þrífa klósettin sem var nu svo
sem allt í lagi þangað til að ég kom að kvenna ótrúlegt en satt
hélt ég að karlaklósettin yrðu slæm en þau voru bara barnaleikur,
eitt er staðreynd kvennfólk gengur hryllilega um klósett þegar þær
eru ekki heima hjá sér, það mætti halda að þær voru blindar
(svo er alltaf sagt að karlar mígi útfyrir get bara sagt að ég mun
aldrei nota þetta á þá, kvennfólk ERU MIKLU
VERRI) en ja ja þetta var nu bara svona smá útúr dúr, en ja
um 8 byrjaði ég svo að gera eins og eg er vön hella a kafi ná í
matin og ...... svo eftir það var eitthvað svo mikið að gera allir
að biðja mig um að gera þetta og hitt, eg var orðin þreytt og ekki
hálfnuð með allt sem eg átti að gera og vera búin með fyrir
5 og var hætt að vita í hvorn fótin ég átti að stíga þegar
klukkan var orðin half 4 nema ég ákvað bara með frekunni að hætta
hugsa um það og bara stíga allt í botn og bara gera allt hlaupandi
og ja ég kláraði nákvamlega að vinna 17:01 sem er bara met held ég
hja mér, juju dauð langaði að fara heim og gráta en gerði það nu
ekki heldur fór eg bara í smá fótabað og horfði á leiðarljós, fór
með pabba upp í búð og ákvað svo bara að dunda mér í eldhúsinu
heima taka úr vel, sitja í hana og þurka af borðinu og hella uppá.
Svo nuna er ég bara inni í herbergi að skrifa og eitthvað vafra um
og er bara í góðum fíling en reyndar er bara gott að hafa mikið að
gera á getur maður sofið um nóttina
Ætlaði nú að klára að slá í dag, en ég held ég geri það
bara á morgun 
en ja eg er bara að pæla að hætta nuna hef svo sem ekkert mikið
meira að segja í bili
»
28.05.2007 12:49:36 / eggrún
ja gott fólk ég hélt að ég vissi hvað sauðburður væri,
en í rauninni komst ég að því í gær að ég hefði bara ekki
hugmynd um hvað það væri eftir að Boga systir tók mig með sér
inn á Hvammi til að fylgjast með. Fyrsta sinn á ævinni hélt ég að
ég væri að breytast í REYKJAVÍKUR...... því þegar ég kom í
fjárhúsin hélt ég myndi æla, mér fannst lyktin svo ógeðsleg
það var nú samt ekkert, lyktin vandist og mér var bara farin
að þykja hún góð, þegar ég sá að rollan væri búin að missa (
vatnið) þá fór hún að sleikja það upp og hún lét eins og hún hefði
aldrei fengið neitt betra. En eftir að hafa verið í fjárhúsunum að
sjá þetta allt gerst, hugsaði ég að ég væri nú alveg til
að eiga nokkrar rollur í framtíðinni. Þótt ég myndi nú kannski
ekki höndlað að setja hendina í rasskatið á rolluni eins
og ég sá í gær. Já þetta er frekar mikil vinna á bak við sauðburð
að merkja allt í bók og hvaða dag lambið fæddist og svo að
marka. Ég held að þetta hafi nu bara verið skemmtilegasti
dagurinn minn í langan tíma að fá að komast að því hvað
sauðburður væri virkilega.
Held ég lati þetta nú bara nægja í
bili.
»
25.05.2007 18:40:09 / eggrún
jess komin helgarfrí frá vinnu.Er búin að vera mæta klukkan 6
síðan ég byrjaði, er að sitja á Reykjavíkurbílinn
fyrir Steinu. ( sem er bara frekar skemmtilegt miða við
að eg er ekki manneskja sem á að vakna klukkan 6 og byrja vinna en
það venst.) Er búin að vera leysa Stúllu af í eldhúsinu og
verð að leysa hana af í allt sumar, sem er bara nice því
það er ekkert eitthvað stress og læti og svo inn á milli get
verið að baka osti að farið inn í feta, sem ég var nú að
gera í dag.
En ja það er bara búið að vera frekar leiðinlegt veður
hérna í Dölunum. Er nú að spá í að fara með Ae í batminton á
morgun, hún er alveg tryllt í að fá mig með sér að spila
( held eg skelli mér með enda geðveik góð hreyfing og bara ágæt að
byrja dagin á badmintoni.
Hef nu ekki mikið meira að segja held eg bara meira seinna

»
21.05.2007 18:52:51 / eggrún
Ja sit herna inn í herbergi half þreytt enda byrjaði ég
að vinna rétt fyrir 6 í morgun, og það fyndnasta við dagin er
að að ég á mér smá ósk sem ég ætla helst ekkert að segja í bili og
ég bjóst svo sem að það myndi ekki vera hræðilegur möguleiki að hun
myndi rætast en í dag komst ég að því að hún gæti bara ræst
hehe svo þið sem vitið ekkert hver sú ósk er verið bara að
vera FORVITIN  
En annars geri eg ekki mikið annað en að vinna, (í
dag var virkilega skemmtilegur dagur i vinnunni) veit svo sem ekki
afhverju þessi dagur í dag endilega.
Já ég hef svo sem alltaf svo mikið að segja enda er
sumarið ekki byrjað. Í morgun um 6 var svo svakalega kalt að
eg var að frosa þessi 10 skref sem ég þurfti að labba til að fara í
vinnuna.
Kannski eg fari bara að gera eitthvað annað en að vera í
þessari HÆGFARA TÖLVU SEM ER AÐ GERA MIG GEDVEIKA (Silja og Hrafn
þið svo sem vitið hvernig ég ER HALF GEÐVEIK hehehe) svo ætli ég
lati þetta ekki bara ekki duga 
»
20.05.2007 16:49:09 / eggrún
Ég hef nu ekki veirð að blogga neitt því eg geri bara
ekki mikið annað en að vinna og heim að sofa, enda er ekkert að
gerast neitt merkilegt hérna í Búðardalnum. Búin að fá út úr
prófunum og gekk svaka vel.
Silja og Hrafn komu um helgina og sá eg þau nu
lítið því þau voru í sauðburði og get eg nu líka sagt að eg hafi nu
ekki hitt hana Bogu heldur því hun er ennig í sauðburði, ég fór nu
upp eftir með Silju og Hrafni áðan og var það bara gaman enda hef
eg ekki farið í fjárhús síðan ég var held eg bara
litil.
En eg skrifa nu örugglega eitthvað meira krassandu næst,
ætla að latta þetta bara nægja bili.
»
17.04.2007 09:27:48 / eggrún
JÁ eg var nú að enda við að lesa blogg systur minnar Silju, ég
hafði mjög gaman af að lesa það því það er bara litill partur
af því hvað var oft mikið fjör og gaman í Bakkahvammi 5 og
rifjaðist upp margt skemmtilegt. Já gott fólk ég var oft FORNARLAMB
Silju en henni hefur enn ekki tekist að rústa mér. En ég var nú
oft, held ég bara búin að lata mömmu fá áfall eins og Silja, ég man
sérstaklega eftir einu, því ég hef aldrei á ævinni orðið eins
hrædd. þetta var þannig að ég var á svölum hjá fólki heima og ég
var eitthvað að labba þarna um og svo sér mamma mig að ég er komin
yfir spítusvalarvarnargrindverkið eða hvað sem þetta heitir nú ja
allaveganna sér mamma það og sér að spíturnar voru orðnar lélegar
og lausar og maðurinn sem átti heima þarna kemur út og öskrar á mig
sem ég myndi segja að það hafi ekki verið alveg það rétta sem hann
gerði en ja ég gleymi þessu aldrei svo lengi sem ég lifi og það var
bara heppni að eg sleppti ekki takinu ef ég hefði gert það þá væri
ég ekki hérna í dag því þetta er bæði hátt og bara steypa þarna
fyrir neðan. Já ég held að ég hafi alltaf verið í hlutverki
áhættuleikara þegar ég var lítil. mamma og pabbi hafa oft verið að
rifja upp hvað ég hafi verið oft að reyna ögra þeim, mamma gat t.d.
ekki farið í síma þá var eg komin upp á borð að labba á
borðbrúninni, ja ég held að ég geti verið í alla dag að skrifa
eitthvað af mínum skammarstrikum en þrátt fyrir að vera svona óþekk
þá hef ég aldrei verið neitt skömmuð.
jæja ég held að ég láti þetta bara nægja í bili
»
20.03.2007 19:13:26 / eggrún
Ég er svo ánægð því eg er búin að fá geðveikar einkunnir heilar
fimm 10 og eina 9
Já svo þoli ég ekki þegar gamlar kerlingar á skrifstofum eru
ógeðslega pirraðar og leiðinlegar við mann og nánast segja upp í
opið geðið á manni að maður sé hálviti fyrir utan það að þær eru
kannski ekkert betri sjálfar eða gáfaðri ANDSKOTINN BARA. Get
gefið eitt dæmi í dag þá mæti ég í skólan og beið eftir að
kennarinn minn myndi kom svo ákvað ég að fara á skrifstofuna
og gá hvort hun væri veik hvað haldiði að gamla kerlingin hafi
sagt HVAÐ ER HÚN EKKI Á FJARVISTARTÖFLUNI, EF EKKI ÞÁ ER
HUN VIÐ. jaja ok svo segjir hun bíddu hver á að kenna og ég
segji það, hvað haldið þið að hun hafi sagt við mig Æ
FYRIRGEFÐU ÉG HEF VÍST GLEYMT AÐ SITJA HANA INN common það er
í lagi að gera mannleg misstök en að þá alltaf svör eins
og maður sé ÞROSKAHEFTUR. OJ bara ég er búin að fá meira en
nóg af gömlum leiðinlegum kerlingum hver veit ég held að
eg eigi eftir að segja eitthvað við hana því þetta er
ekki í fyrsta sinn sem eg lendi í henni. EN innst inni þá
hugsa ég bara GREYIÐ MAÐURINN HENNAR SINNIR HENNI EKKI NÓG
»
Síður: 1 2 3 ... 5
|
|